Ný útgáfa GoPro Foris
Hugvit kynnir nýjustu útgáfu GoPro Foris!
Hugvit kynnir nýjustu útgáfu GoPro Foris!
GoPro stígur skref til framtíðar með nýjustu uppfærslu. GoPro er nú í boði í skýru og stillanlegu viðmóti sem umbyltir notendaupplifun og stóreykur afkastagetu. Uppbygging viðmótsins er vönum notendum kunnug, en ný tækni gerir upplýsingar aðgengilegri, aðgerðir fljótlegri og viðmótið þægilegra.
Stilltu þitt notendaviðmót eftir þínu höfði, fáðu forskoðun á skjöl, eða samþykktu rýni beint úr málasýn GoPro. Þetta og margt fleira er nú í boði og GoPro kerfið er öflugra en nokkru sinni fyrr. Nýja viðmótið er hannað með snertiskjái í huga og styður bæði Internet Explorer og Chrome.
Fleira er í útgáfunni en nýtt viðmót. Nýjar stýringar á aðgerðaréttindum notenda bætast við, ásamt öflugra dagatali, og ýmsum uppfærslum sem styðja upplýsingaöryggi.
Hafðu samband og fáðu kynningu á nýrri kynslóð GoPro lausna í dag.
* GoPro styður bæði nýtt og hefðbundið viðmót
GoPro fyrir .NET útgáfa 2.9 er komin út. Þessi útgáfa er hluti af reglulegum uppfærslum GoPro upplýsingakerfisins.
Ýmsar breytingar er að finna í þessari viðhaldsútgáfu. Búið er að auka skilvirkni kerfisins og bæta leitina, auk þess sem fleiri valmöguleikar tengdir öryggismálum standa nú til boða. Nánari upplýsingar má nálgast hjá þjónustudeild.
Hugvit býður notendum GoPro á kynningu, 6. nóvember á Hilton Nordica. Komdu og upplifðu byltingarkenndar nýjungar í GoPro.
Magn rafrænna gagna eykst með hverju ári, rafræn samvinna er sjálfsagður hlutur og helmingur skrifstofustarfsmanna nýta snjalltæki við vinnu sína. Þessar breytingar kalla á nýja nálgun í málastjórnun, á meðan hvergi er slakað á kröfum um öryggi.
Næsta kynslóð GoPro mætir þessum þörfum. Við stígum næsta skrefið í málastjórnun og bjóðum þér að koma og sjá.
Skráðu þig núna. Við hlökkum til að sjá þig.
Ný viðhaldsútgáfa er komin út fyrir GoPro fyrir .NET. Útgáfan er kjörin fyrir viðskiptavini í GoPro 2.5 eða eldri, en hún inniheldur allar breytingar fyrri útgáfa auk nokkurra vel valinna umbóta.
Sem dæmi um nýjungar má nefna möguleikann á að breyta skráarheitum, sýna ‚Aðra starfsmenn‘ í málasjónarhorni og áframsenda marga tölvupósta í einu. Við hvetjum áhugasama til að hafa samband og fá nánari kynningu á nýjungum, en mikil þróun hefur átt sér stað í GoPro fyrir .NET undanfarin ár.
Ný útgáfa GoPro fyrir .NET býður upp á öflugar nýjungar í skjalastjórnun, verkefnastjórnun og eykur hraða kerfisins.
Berðu saman ólíkar útgáfur skjals með einni aðgerð í GoPro. Settu útgáfur og milliútgáfur í útgáfustjórnun til að fá betra yfirlit yfir tímalínu mikilvægra skjala. Skjöl fá nú skjalanúmer sem má flokka og leita eftir. Flyttu inn möppur með öllum undirmöppum og tilheyrandi skjölum – þú dregur einfaldlega inn efstu möppuna og hitt fylgir með. Auðveldara er líka að búa til skjöl eftir sniðmátum, því nýjar birtingarstillingar leyfa kerfisstjórum að velja hvaða sniðmát birtast í hverju samhengi.
Þessi útgáfa styður við Internet Explorer 11 og Windows Server 2012, gerir notendum kleift að bæta við nýjum einingum á einfaldan hátt og stóreykur öryggi við gagnameðhöndlun. Við viljum minna viðskiptavini sem ekki hafa uppfært í 2.5 á að bíða með að uppfæra í IE 11, þar sem eldri útgáfur munu ekki styðja við þennan vafra!
Nú má á einfaldan hátt virkja aðgang fyrir GoPro á snjalltæki, bæta við Skilalausn fyrir rafræn skil og bæta við öflugri Stjórnendasýn. Auk þess er auðvelt að virkja öflugar viðbótareiningar eins og Umsóknarkerfi og Samningakerfi fyrir GoPro.
Útgáfan býður upp á ýmislegt sem auðveldar líf skjalastjóra og almennra GoPro notenda. Merkja má skjöl í GoPro sem trúnaðarskjöl, opna skjöl beint án millispjalda, og hlaða niður öllum skjölum máls í “zip” skrá svo örfá dæmi séu nefnd!
Ný stílsnið fyrir prentun, breytingar á hegðun viðmótsins og ýmsar umbætur í GoPro Desktop og hliðarstiku gera þessa útgáfu sérlega bitastæða, sérstaklega fyrir þá sem vinna mikið í GoPro eða Microsoft Outlook.
Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar eða hafðu samband í síma 510 3100 og fáðu kynningu á nýjungunum í GoPro fyrir .NET 2.5!
Hugvit hf
Tunguháls 19
110 Reykjavík
Sími: (+354) 510 3100
Fax: (+354) 510 3110
Netfang: hugvit@hugvit.is
Personuverndarstefna
Þessi vefsíða notast við vafrakökur Það er til þess að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.
LokaStillingarWe may request cookies to be set on your device. We use cookies to let us know when you visit our websites, how you interact with us, to enrich your user experience, and to customize your relationship with our website.
Click on the different category headings to find out more. You can also change some of your preferences. Note that blocking some types of cookies may impact your experience on our websites and the services we are able to offer.
These cookies are strictly necessary to provide you with services available through our website and to use some of its features.
Because these cookies are strictly necessary to deliver the website, refusing them will have impact how our site functions. You always can block or delete cookies by changing your browser settings and force blocking all cookies on this website. But this will always prompt you to accept/refuse cookies when revisiting our site.
We fully respect if you want to refuse cookies but to avoid asking you again and again kindly allow us to store a cookie for that. You are free to opt out any time or opt in for other cookies to get a better experience. If you refuse cookies we will remove all set cookies in our domain.
We provide you with a list of stored cookies on your computer in our domain so you can check what we stored. Due to security reasons we are not able to show or modify cookies from other domains. You can check these in your browser security settings.
These cookies collect information that is used either in aggregate form to help us understand how our website is being used or how effective our marketing campaigns are, or to help us customize our website and application for you in order to enhance your experience.
If you do not want that we track your visit to our site you can disable tracking in your browser here:
We also use different external services like Google Webfonts, Google Maps, and external Video providers. Since these providers may collect personal data like your IP address we allow you to block them here. Please be aware that this might heavily reduce the functionality and appearance of our site. Changes will take effect once you reload the page.
Google Webfont Settings:
Google Map Settings:
Google reCaptcha Settings:
Vimeo and Youtube video embeds:
The following cookies are also needed - You can choose if you want to allow them:
You can read about our cookies and privacy settings in detail on our Privacy Policy Page.
Privacy-Policy