Hliðarstikan

Hliðarstikan í Outlook er vinsæl viðbót við GoPro kerfið. Þessi lausn gefur notendum yfirsýn yfir mál í GoPro beint úr pósthólfinu. Þangað má svo draga og sleppa pósti, viðhengjum og skjölum, sem vistast beint í GoPro. Einnig má búa til ný mál, tengiliði og svara tölvupóstum sem vistaðir hafa verið í GoPro beint úr Outlook.

  • Aðgangur að upplýsingum í GoPro beint úr innhólfinu
  • Auðveldar alla vinnu með tölvupóst
  • Flytja má inn póst, skjöl og viðhengi
  • Búðu til nýtt mál eða tengilið beint úr Outlook
  • Hliðarstikan merkir innfluttan póst og staðsetningu hans í GoPro
  • Snjallhnappur lærir á hegðun notandans og kemur með uppástungur að skjölunarstað

GoPro í innhólfinu!

Hliðarstikan er gluggi inn í GoPro kerfið.

Þar færð þú aðgang að upplýsingum um mál og viðskiptavini, beint úr innhólfinu. Þú getur leitað eða búið til ný mál eða tengiliði án þess að yfirgefa Outlook eða Lotus Notes. Þetta er frábær lausn fyrir notendur sem vinna mikið í innhólfi sínu, þar sem þeir geta fengið yfirlit eða skjalað samskipti við tengiliði án nokkurrar truflunar.

Svo auðvelt að vista tölvupóstinn!

Finndu (eða búðu til) staðsetningu og dragðu svo póstinn þangað. Það verður ekki einfaldara!

En það er ekki nóg með það. Þú getur líka dregið og sleppt viðhengjum beint úr preview glugganum í Outlook, eða fært inn skjöl beint úr tölvunni þinni. Dragðu þau bara á réttan stað í Hliðarstikunni og slepptu. Þá er það komið. Kerfið athugar sjálfkrafa hvort póstur hafi þegar verið fluttur inn (og varar þig við).

Þú getur svarað tölvupóstum beint úr Hliðarstikunni, látið sjálfkrafa flytja inn svarpósta og ef kerfið tekur eftir að póstur er hluti af stærra samtali, býðst það til þess að flytja inn tengda pósta.

Tækni sem sparar tíma

Tölvupóstur sem hefur verið fluttur inn er merktur með haki í innhólfi svo þú sjáir strax hvað á eftir að vista í GoPro. Pósturinn fær flokkun (e. category) sem bendir á staðsetningu í GoPro, og stilla má kerfið til að flytja sjálfkrafa inn svarpósta*.

Með kerfinu fylgir auk þess snjallhnappur sem stingur upp á staðsetningum fyrir póst. Hnappurinn ‘lærir’ á hegðun notanda, þannig að hann kemur með betri uppástungur því meira sem hann er notaður.

* Mismunandi virkni er í boði í póstkerfum öðrum en Microsoft Outlook – hafið samband við söludeild til að fá nánari upplýsingar um önnur póstkerfi.

© Copyright - Hugvit