GoPro útnefnt sem „Major Player“ í nýrri IDC MarketScape skýrslu

GoPro var útnefnt ,,Major Player“ sem leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki á sviði málastjórnunar og verkferlastjórnunar tengda gervigreind fyrir opinbera stjórnsýslu, í nýútgefinni skýrslu IDC MarketScape: Worldwide Software Platforms for National Civilian Government AI-Enabled Case Management 2026 Vendor Assessment.

„Við erum afar stolt og þakklát fyrir að IDC hafi viðurkennt GoPro sem Major Player í IDC MarketScape fyrir málastjórnun með gervigreind fyrir opinbera stjórnsýslu. Þessi viðurkenning staðfestir markmið okkar um að bjóða örugga og snjallar lausnir með gervigreind fyrir opinbera stjórnsýslu sem gerir opinberum stofnunum kleift að veita skilvirka og góða þjónustu.“ sagði Ólafur Daðason, forstjóri GoPro móðurfélags Hugvits.

GoPro þróar staðlaðan hugbúnað (COTS) fyrir málastjórnun fyrir opinbera stjórnsýslu og styður við málastjórnun, skjalastjórnun, verkflæði og ferlastjórnun innan réttarkerfis, eftirlitsstofnana og annarrar stofnanna. Lausnaframboð fyrirtækisins samanstendur af GoPro Foris, GoPro Uma og Casedoc, sem eru í boði bæði sem skýjalausnir eða til uppsetninga í umhverfi stofnanna.

Opinberar stofnanir eru í auknum mæli að endurnýja eldri málastjórnunarkerfi meðal annars með notkun gervigreindar án þess að slaka á kröfum um öryggi, rekjanleika og hlýtingu við lög og reglugerðir.

GoPro fjárfestir markvisst í hagnýtum lausnum sem byggja á gervigreind til að bæta skilvirkni í rekstri en á sama tíma að taka mið af ströngum öryggis, kröfum og þeim lögum og reglugerðum sem opinberar stofnanir þurfa að uppfylla.

Lausnir GoPro styðja heildstætt verklag innan almennra opinbera stjórnsýslu og réttarkerfisins, þar á meðal móttöku mála, framvindu þeirra, þinghöld, skjalameðferðir og áfrýjunarferli. Jafnframt styðja lausnirnar samþættingar við innviði innan opinberrar stjórnsýslu.

GoPro afhendir lausnir sínar bæði beint og í samstarfi við ört stækkandi net alþjóðlegra, svæðisbundinna og staðbundinna innleiðingaraðila. Þessi nálgun tryggir staðfærslu lausna, öflugar samþættingar og sjálfbæra afhendingargetu á öllum þeim mörkuðum sem fyrirtækið þjónustar.

Skoða nánar fréttatilkynningu hér.

Um GoPro

GoPro var stofnað árið 1993 og er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í málastjórnun, sjálfvirknivæðingu verkferla og stafrænum lausnum fyrir opinbera stjórnsýslu. Með lausnum sínum styður GoPro stjórnvöld, dómstóla, sveitarfélög og aðrar stofnanir við að nútímavæða flókna málavinnslu, skjalastjórnun og þjónustu við borgara.

Fyrirtækið sameinar djúpa sérfræðiþekkingu á opinberri stjórnsýslu við örugga og skalanlega tækni og heldur áfram að fjárfesta í ábyrgri þróun lausna sem byggja á gervigreind fyrir innlenda og evrópska markaði.

Heimild

IDC MarketScape: Worldwide Software Platforms for National Civilian Government AI-Enabled Case Management 2026 Vendor Assessment, skýrsla nr. US53717226, gefin út 1. júlí 2026.

Um IDC MarketScape

Matsaðferð IDC MarketScape er þróuð til að veita heildaryfirlit yfir samkeppnisstöðu upplýsingatækni- og fjarskiptafyrirtækja á tilteknum markaði. Aðferðafræðin byggir á ítarlegu matslíkani þar sem bæði eigindleg og megindleg viðmið eru lögð til grundvallar og niðurstöðurnar birtar á myndrænan hátt sem sýnir stöðu hvers fyrirtækis á markaðnum.

IDC MarketScape veitir skýran samanburðargrunn fyrir vörur, þjónustu, getu og stefnu fyrirtækja ásamt mati á núverandi og framtíðarárangri þeirra á markaði. Ramminn gerir jafnframt kaupendum upplýsingatæknilausna kleift að fá heildstæða sýn á styrkleika og veikleika núverandi og mögulegra birgja.