Tenging við pósthólf á Ísland.is
Á síðasta ári voru samþykkt lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Með þeim er fest í sessi sýn stjórnvalda um að meginboðleið samskipta við einstaklinga og lögaðila verði stafræn og miðlæg á einum stað, gegnum stafrænt pósthólf á Ísland.is. Einnig er búið að samþykkja aðgerðaráætlun um innleiðingu fyrir öll ráðuneyti og undirstofnanir, þar sem tímaplan er fyrir hvenær æskilegt að er að stofnanir hefji deilingu ganga til Ísland.is.
Hugvit hefur brugðist við og þróað nýja tengilausn sem uppfyllir þarfir okkar viðskiptavina um að deila skjölum beint úr GoPro Foris í pósthólf á Ísland.is á einfaldan og þægilegan máta. Lausnin styður við deilingu gagna og heldur utan um rekjanleikja og skjölun á öllu sem viðkemur þessari deilingu; hver sendi hverjum og hvenær.
Þessi lausn gerir notendum kleift að deila skjölum beint úr GoPro Foris í pósthólf á Ísland.is. Gögnin eru birt með sannarlegum hætti hjá móttakanda, sem auðkennir sig og getur þá nálgast þessi gögn í sínu pósthólfi hjá Ísland.is. Þetta er ígildi þess að senda ábyrgðarbréf til einstaklings eða lögaðila.
Þessi lausn skapar gríðarlegt hagræði og eykur öryggi í útsendingu á bréfum og skjölum til málsaðila. Endilega hafið samband til að bæta þessari lausn við GoPro Foris. Við stillum upp öruggum samskiptum við pósthólfið og tryggjum tengingu milli stofnunar og Ísland.is.