Reykjavíkurborg velur upplýsingastjórnunarkerfi frá Hugviti
Það er mikil viðurkenning fyrir Hugvit að Reykjavík hafi valið okkur til að innleiða nýtt upplýsingastjórnunarkerfi, í kjölfar útboðs á evrópska efnahagssvæðinu.
Við hjá Hugviti erum stolt af því að vera valið úr hópi þeirra sex fyrirtækja sem tóku þátt i þessu umfangsmikla og ítarlega 18 mánaða matsferli.
Reykjavíkurborg setti fram heilstæðar og framsæknar kröfur til nýs upplýsingastjórnarkerfi sem gerir miklar kröfur til hugbúnaðar og kallar á nýjustu tækni við að leysa á einfaldan og skilvirkan hátt fjölþættar þarfir hina ýmsu sviða borgarinnar.
Hugvit hefur lagt mikið í þróun á nýrri línu af hugbúnaði undanfarin ár, sem lausnamengi borgarinnar verður byggt á. Lausnamengi sem snýr meðal annars að mála-, verkefna-, skjala- og ferlastjórnun auk innleiðingu á gæða-, funda- og samningalausnum.
Kerfið, sem hefur fengið nafnið Hlaðan, er umfangsmikið og nær til flestra sviða borgarinnar. Samningurinn er til 10 ára og hljóðar upp á tæpar 970 milljónir. Gert er ráð fyrir að fyrsti hluti uppsetningar hefjist í byrjun næsta árs.
„Þessi samningur er mikil viðurkenning á tækni sem við höfum þróað, sem og faglegri getu starfsfólks Hugvits. Við óskum Reykjavíkurborg til hamingju með þennan áfanga og við hlökkum til samstarfsins og þess að innleiða og þjónusta nýjar lausnir fyrir starfsemi borgarinnar“ segir Jón Alvar Sævarsson, sölu og markaðsstjóri Hugvits.