Landsréttur og dómstólasýsla velja GoPro
Ríkiskaup birtu nýverið niðurstöður útreikninga á tilboðum sem lögð voru fram fyrir útboð upplýsingakerfis Dómstóla og Dómstólasýslu. Við erum stolt af því að sjá að tilboð Hugvits, sem sambland af gæðamati og verðtilboði, hlaut 99/100 stigum samkvæmt valforsendum. Það verður spennandi að fara af stað með nýtt viðmót GoPro hjá nýrri stofnun og nýju dómstigi.
Við óskum starfsmönnum hjartanlega til hamingju með góðan árangur. Við þökkum dugnaðinn og eljuna sem fór í þessa vinnu, en markviss vinnubrögð náðu að skila topp einkunn þrátt fyrir knappa tímalínu.
Auk þess notum við tækifærið og óskum Ríkiskaupum til hamingju með metnaðarfullt og framsækið útboð, og þökkum við heimsóknina frá öllum sem tóku þátt í gæðaprófunum.