Árið 2021 urðu tímamót þegar lög voru samþykkt um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Þetta þýðir að öll formleg erindi frá opinberum stofnunum verða nú stafræn – og eru send til viðtakenda í pósthólfið á Ísland.is. Í framhaldi af lögunum var aðgerðaráætlun sett af stað og eiga allar opinberar stofnanir að vera búnar að hefja innleiðingu og tengja sig við Ísland.is fyrir 1. janúar 2025.
Tengdu GoPro Foris beint við Ísland.is – og þú sparar bæði tíma og fyrirhöfn!
Við hjá Hugviti höfum þróað lausn sem styður við þessar kröfur stjórnvalda og gerir það að verkum að okkar viðskiptavinir geta deilt skjölum beint úr GoPro Foris mála- og skjalakerfinu beint pósthólfið á Ísland.is. Hvort sem þú ert að senda gögn til einstaklinga eða lögaðila, þá tryggjum við að allt ferlið sé rekjanlegt og þú sérð hver sendi hvað, til hvers, og hvenær.
Hagkvæmni, öryggi og ábyrgð í einu handtaki
Þetta er ígildi þess að senda ábyrgðarbréf, nema mun einfaldara og hraðvirkara. Með lausninni okkar tryggjum við að gögnin þín komist örugglega til móttakanda, sem auðkennir sig og nálgast skjölin í pósthólfinu sínu á Ísland.is.
Ekki bíða – hafðu samband í dag!
Það er engin ástæða til að bíða. Með okkar lausn tryggjum við örugg samskipti milli þín og Ísland.is. Hafðu samband við okkur og við leysum þetta.
https://hugvit.is/wp-content/uploads/tenging-postholf-island.jpg6301200Jóhanna Björk Sveinsdóttirhttps://hugvit.is/wp-content/uploads/2014/12/hugvit_logo.pngJóhanna Björk Sveinsdóttir2024-10-03 13:09:432024-10-03 14:00:04Miðlun skjala til Ísland.is
Creditinfo hefur valið hvaða fyrirtæki skara framúr í íslensku atvinnulífi 2024.
Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði í rekstri, gegnsæi, eiginfjárhlutfalli og fleiri þáttum sem meta afkomu fyrirtækja.
Það er mikil heiður að hljóta viðurkenninguna, en Hugvit er í hópi 2% íslenskra fyrirtækja sem teljast til Framúrskarandi fyrirtækja árið 2024. Við erum mjög stolt og ætlum að halda áfram að vera Framúrskarandi fyrirtæki.
Vantar þig betri yfirsýn á stöðu mála í GoPro Foris? Ef svo er þá gæti gagnvirkt mælaborð verið lausn fyrir þig. Mælaborð dregur fram lykilupplýsingar í GoPro Foris og notendur fá myndræna sýn á stöðu mála. Mælaborð fyrir stjórnendur gefa yfirsýn á álag starfsfólks og auðvelt er að sjá hverjir eru með of mikið af málum á sinni könnu eða jafnvel hverja vantar verkefni. Þannig er hægt að jafna vinnuálag, vinna markvissara og koma í veg fyrir að fara yfir tímamörk mála.
Gagnvirk mælaborð í GoPro Foris halda utan um lykil mælikvarða (e. KPI´s) og tímafresti og gefa myndræna sýn á stöðu mála. Mælaborð geta verið eitt af því mikilvægasta fyrir greiningar og ákvarðanatöku fyrirtækja. Oft sýna þau ákveðin mynstur (e. trend) í fyrirtækinu sem hægt er að greina og leysa eða nýta betur til að auka afköst.
Af hverju mælaborð?
GoPro Foris er skjala- og málakerfi sem heldur vel utan mál og skjöl hjá stofnunum og fyrirtækjum. Til að auðvelda yfirsýn og draga fram lykilupplýsingar þá henta gagnvirk mælaborð í GoPro Foris mjög vel.
Með hjálp sérfræðinga Hugvits getum við stillt saman upp mælaborði fyrir þig, bæði mælaborði fyrir almenna notendur. en einnig fyrir stjórnendur og/eða fyrir skipulagsheildir sem vinna saman að málum og markmiðum.
Með mælaborðum er til dæmis hægt að fylgjast með málum sem eru óafgreidd, í vinnslu eða afgreidd. Þar er hægt að sjá verkefnastöðu og fá sýn á álag starfsfólks. Einnig er hægt að skrá tímamörk á mál og verkefni til að fá enn betri gögn úr kerfinu.
Gagnvirk mælaborð
Mælaborðin í GoPro Foris eru gagnvirk, sem felur í sér að hægt er að grafa sig dýpra í mælaborðið, finna hvaðan tölurnar koma og vinna með upplýsingarnar. Að hafa gagnvirk mælaborð sparar mikinn tíma.
Vinsæl stöðluð mælaborð
Yfirlit yfir skjöl og mál
Sýnir stöðu yfirstandandi mála, til dæmi flokkuð eftir deild, tímamörkum, mikilvægi eða tegund.
Aðgengi að skjölum og málum
GoPro Foris heldur utan um skjöl og mál en með viðbættu gagnvirku mælaborði eru málin flokkuð eftir fyrirfram ákveðnu ferli. Mælaborðin eru gagnvirk svo hægt er að fara í skjölin í gegnum mælaborðin.
Betri eftirfylgni
Auðveldara að halda utan um sín skjöl og mál og fyrir stjórnendur að fylgjast með framgangi skjala og mála. Kemur frekar í veg fyrir að skjöl fari yfir tímarmörk. Sýna álagstíma og hægt er að bera kennsl á flöskuhálsa og þannig fá tækifæri að bæta verkferla.
Skýrslugerð og greining gagna
Í GoPro Foris er hægt að búa til sjálfvirkar skýrslur og taka þær út í Excel. Hægt er að velja til dæmis að fá tölvupóst einu sinni í viku með fyrirfram ákveðnum skýrslum sem geta meðal annars innihaldið Pivot töflur sem byggja á gögnum frá GoPro Foris.
Endilega heyrðu í okkur
Ef þetta gæti hjálpað þér og þínu fyrirtæki þá endilega bókaðu fund með söluteyminu okkar sem leiðbeinir þér og athugar hvort mælaborð myndi ekki henta ykkur. Saman ákveðum við svo markmiðin með mælaborði og okkar sérfræðingar vinna að því að stilla upp mælaborði sem hentar fyrir ykkur.
Við hjá Hugviti bjóðum nú námskeið í GoPro lausnum með breyttu sniði. Markmið námskeiðanna er að bæta hæfni ykkar í lausnunum, kynna fyrir ykkur nýjungar og að auðvelda notendum GoPro Foris að nota kerfið.
Námskeiðin eru bæði fyrir almenna notendur, sem og fyrir umsjónarfólk og kerfisstjóra GoPro Foris. Námskeiðin eru sniðin að notendum hverju sinni og hægt er að velja fjarkennslu, staðkennslu í kennslustofu Hugvits eða við komum til ykkar og höldum námskeiðið á ykkar vinnustað. Allt það sem hentar ykkur best.
Endilega skoðið nýju námskeiðin okkar hér og skráðið ykkur eða verið í sambandi við okkur.
Einnig viljum við minna ykkur á að hjá Hugviti starfa fjöldi ráðgjafa sem vilja endilega aðstoða ykkur ef ykkur vantar svör eða ráðgjöf ekki hika við aðheyra í okkur.
Hugvit er eitt fyrirtækja í úrvalsliði þeirra sem standast kröfur Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2023.
Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði í rekstri, gegnsæi, eiginfjárhlutfalli og fleiri þáttum sem meta afkomu fyrirtækja.
Það er mikil heiður að hljóta viðurkenninguna, en Hugvit hefur verið á lista frá 2011 en félagið í heild hefur verið frá upphafi undir nafni GoPro hefur verið á lista frá upphafi. Þennan árangur í rekstri staðfestir frábæra vinnu starfsfólks, sem byggir á traustum viðskiptavinum.
https://hugvit.is/wp-content/uploads/credidinfo-2023.png4561200Gunnar Birgissonhttps://hugvit.is/wp-content/uploads/2014/12/hugvit_logo.pngGunnar Birgisson2023-12-06 13:42:062023-12-06 13:44:31Hugvit er Framúrskarandi fyrirtæki 2023
Fjölmenn ráðstefna Hugvits var haldin á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 16. nóvember.
Dagskráin var fjölbreytt og gaf góða innsýn í allt það nýjasta er viðkemur málastjórnun, samþættingu við lausnir eins og Ísland.is og Microsoft 365.
Reykjavíkurborg, Forsætisráðuneytið og Starfrænt Ísland var með erindi á ráðstefnunni ásamt því að starfsfólki Hugvits sem fjölluðu um notkun, innleiðingar og lausnir.
Hugvit þakkar öllum þeim sem sáu sér fært að mæta og endilega verið í sambandi við okkur við erum ávallt tilbúin að ræða frekari lausnir við þá sem þess óska.
Fimmtudaginn 31. ágúst fer fram ráðstefna á vegum IRMA – Félags um skjalastjórn á Hótel Nordica undir heitinu Þetta þarftu að vita.
Hugvit mun verða með sýningabás á ráðstefnunni og kynna nýja lausnsem gerir stofnunum kleift að birta skjöl úr GoPro Foris skjala- og málakerfinu hjá notendum með pósthólf á Ísland.is. Þessi lausn er hönnuð með það að leiðarljósi að uppfylla kröfur sem íslensk stjórnvöld hafa sett fram um stafrænt pósthólf stjórnvalda á Ísland.is. Einnig er búið að samþykkjainnleiðingaráætlun fyrir öll ráðuneyti og undirstofnanir, þar sem tímaplan er fyrir hvenær æskilegt að er að stofnanir hefji deilingu ganga til Ísland.is.
Tenging GoPro Foris skjala- og málakerfisins við pósthólf á Ísland.is uppfyllir þarfir stofnana um að deila skjölum beint úr GoPro Foris í pósthólf á Ísland.is á einfaldan og þægilegan máta. Lausnin heldur utan um rekjanleikja og skjölun á öllu sem viðkemur birtingu skjala í pósthólfinu; hver deildi með hverjum og hvenær.
Gögnin eru birt með sannarlegum hætti hjá móttakanda, sem auðkennir sig og getur þá nálgast þessi gögn í sínu pósthólfi hjá Ísland.is.
Við munum segja nánar frá þessari lausn og fleirum á ráðstefnunni og hvetjum okkar viðskiptavini til að mæta.
https://hugvit.is/wp-content/uploads/ThettaTharftuAdVita.png340900Lísa Ingvarsdóttirhttps://hugvit.is/wp-content/uploads/2014/12/hugvit_logo.pngLísa Ingvarsdóttir2023-08-29 12:54:082023-08-29 12:54:09Hugvit á ráðstefnu IRMA
Á síðasta ári voru samþykkt lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Með þeim er fest í sessi sýn stjórnvalda um að meginboðleið samskipta við einstaklinga og lögaðila verði stafræn og miðlæg á einum stað, gegnum stafrænt pósthólf á Ísland.is. Einnig er búið að samþykkja aðgerðaráætlun um innleiðingu fyrir öll ráðuneyti og undirstofnanir, þar sem tímaplan er fyrir hvenær æskilegt að er að stofnanir hefji deilingu ganga til Ísland.is.
Hugvit hefur brugðist við og þróað nýja tengilausn sem uppfyllir þarfir okkar viðskiptavina um að deila skjölum beint úr GoPro Foris í pósthólf á Ísland.is á einfaldan og þægilegan máta. Lausnin styður við deilingu gagna og heldur utan um rekjanleikja og skjölun á öllu sem viðkemur þessari deilingu; hver sendi hverjum og hvenær.
Þessi lausn gerir notendum kleift að deila skjölum beint úr GoPro Foris í pósthólf á Ísland.is. Gögnin eru birt með sannarlegum hætti hjá móttakanda, sem auðkennir sig og getur þá nálgast þessi gögn í sínu pósthólfi hjá Ísland.is. Þetta er ígildi þess að senda ábyrgðarbréf til einstaklings eða lögaðila.
Þessi lausn skapar gríðarlegt hagræði og eykur öryggi í útsendingu á bréfum og skjölum til málsaðila. Endilega hafið samband til að bæta þessari lausn við GoPro Foris. Við stillum upp öruggum samskiptum við pósthólfið og tryggjum tengingu milli stofnunar og Ísland.is.
https://hugvit.is/wp-content/uploads/tenging-presentation.png317833Lísa Ingvarsdóttirhttps://hugvit.is/wp-content/uploads/2014/12/hugvit_logo.pngLísa Ingvarsdóttir2023-06-14 15:19:132023-06-15 11:07:20Tenging við pósthólf á Ísland.is