Sveitarfélagalausnir
Skýrari stjórnsýsla og betri þjónusta við íbúa
Erindi íbúa, mál, fundir og skjalavarsla sveitarfélagsins í einu GoPro umhverfi, tengt Ísland.is og kerfunum sem þið notið nú þegar.
47%
skilaskyldra aðila sem skila gögnum rafrænt til Þjóðskjalasafns nota GoPro.
Heimild: Þjóðskjalasafn Íslands, afhendingarár 2024
Frá 2003
Frá 2010
Frá 2014
Frá 2025
Ávinningur
Minni handavinna. Betri yfirsýn.
Skýrari þjónusta
Einfaldari móttaka erinda
Erindi af vef og úr Ísland.is verða sjálfkrafa að máli, án endurskráningar.
Skýr ábyrgð og málsferli
Hvert mál hefur ábyrgðarmann, stöðu og næsta skref sem allir sjá.
Betri þjónusta við íbúa
Íbúar fá svör fyrr og geta fylgst með stöðu síns erindis.
Örugg skjalavarsla
Skjöl varðveitt samkvæmt lögum og skilað rafrænt til Þjóðskjalasafns.
Svona virkar það
Frá erindi íbúa
til varðveislu
Sama ferli fyrir hvert erindi. Allt skráð í málinu, frá fyrsta degi.
Íbúi sendir erindi
Um Íbúagátt eða Ísland.is.
Mál stofnast
Sjálfkrafa, með gögnum erindisins.
Verkefni úthlutað
Á rétt svið og ábyrgðarmann.
Samskipti skráð
Tölvupóstur, skjöl og athugasemdir í málinu.
Afgreiðsla
Svar sent íbúa og ákvörðun skráð.
Varðveisla
Rafræn skil til Þjóðskjalasafns.
Lausnir fyrir sveitarfélög
Lausnir sem passa
við þitt verklag
Velferðarlausn
Barnavernd og velferðarmál í einu kerfi. Tilkynningar af vef og einfaldari skýrsluskil til Barna- og fjölskyldustofu.
Íbúagátt
Umsóknir íbúa og formleg erindi úr þjónustukerfi Ísland.is verða sjálfkrafa að máli í GoPro.
Byggingarfulltrúalausn
Tengd gátt HMS. Byggingarleyfi, lóðir og úttektir á einum stað.
Funda- og nefndagátt
Frá máli á dagskrá til undirritaðrar fundargerðar. Gátt fyrir nefndarfólk og birting á vef sveitarfélagsins.
Rafræn skil
Rafræn skil á skjalasafni beint úr GoPro til Þjóðskjalasafns. Einfaldar vinnu skjalastjóra.
Samningakerfi
Yfirsýn yfir samninga og gildistíma þeirra, með rafrænni undirritun.
Reiknivél
Hvað sparast með
sjálfvirkri skráningu?
Settu inn ykkar tölur. Dæmið reiknar tímann sem fer í að skrá erindi handvirkt.
Tengingar
Tengist kerfunum sem þú notar
Gögn flæða milli GoPro og kerfanna sem sveitarfélagið vinnur í daglega.
- Ísland.is
- Þjóðskrá
- Barnaverndargátt
- Mannvirkjagátt HMS
- Microsoft 365
- Dokobit
- Taktikal
- Zendesk
- Þjóðskjalasafn
- Fjárhagskerfi
- Power BI
Öryggi og kröfur
Uppfyllir kröfurnar sem þú vinnur eftir
ISO/IEC 27001
Hýst í vottuðu umhverfi upplýsingaöryggis.
Persónuvernd
Viðkvæm mál íbúa varin í samræmi við GDPR.
Rekjanleiki
Hver aðgerð er skráð, hver skoðaði hvað og hvenær.
Rafræn skjalavarsla
Vistun og skil samkvæmt kröfum Þjóðskjalasafns.
Spurt og svarað
Algengar spurningar
Finnurðu ekki svarið? Við svörum gjarnan, hvort sem spurningin er tæknileg eða um kostnað.
Hversu langan tíma tekur innleiðing?
Það fer eftir umfangi og fjölda lausna. Við gerum innleiðingaráætlun með ykkur í upphafi, setjum kerfið upp, flytjum gögn og þjálfum starfsfólk, og þið vitið frá byrjun hvenær hver áfangi klárast.
Er GoPro tengt Ísland.is og Microsoft 365?
Já. Erindi úr þjónustukerfi Ísland.is verða að máli í GoPro og gögn eru send og móttekin þar. Tölvupóstur, dagatal og skjöl í Microsoft 365 tengjast beint við málin.
Hvernig er öryggi tryggt?
GoPro er hýst í ISO/IEC 27001-vottuðu umhverfi. Kerfið skráir hver skoðaði hvað og hvenær, heldur utan um útgáfur skjala og stýrir aðgangi eftir heimildum hvers notanda.
Er hægt að flytja eldri gögn í GoPro?
Já. Við förum yfir gögnin í eldra kerfinu með ykkur og flytjum mál, skjöl og skráningar yfir í GoPro svo saga málanna haldist. Umfang flutningsins er metið í upphafi verkefnisins.
Styður GoPro skjalavörslu og rafræn skil?
Já. Skilalausn GoPro skilar skjalasafni rafrænt til Þjóðskjalasafns, samkvæmt kröfum um skil.
Hentar GoPro minni sveitarfélögum?
Já. Þið veljið þær lausnir sem þið þurfið og kostnaður fer eftir fjölda notenda. Mörg sveitarfélög byrja á mála- og skjalakerfinu og bæta við lausnum eftir þörfum.