Námskeið í GoPro

Hagnýt námskeið fyrir umsjónarfólk, kerfisstjóra og almenna notendur. Haldin í fjarfundi eða hjá okkur, eftir því sem hentar ykkar teymi.

Veldu námskeið

Fyrir umsjónarfólk og kerfisstjóra

2 tímar

GoPro Umsjón

Yfirferð á stillingum og virkni á kerfisstjórnborði. Meðal annars verður farið yfir skráningu notenda, aðgangsstýringar, málasniðmát, lista, málalykla og helstu stillingar.

60 mínútur

Nýtt kerfisstjórnborð

Farið yfir nýtt kerfisstjórnborð. Meðal annars stillingar, listar, flokkar og notendaumsjón. Stofnun mála- og skjalasniðmáta. Notkun á „tögum“ í bréfsefnum og tölvupóstsniðmátum.

60 mínútur

Uppsetning verkferla, fasa og gátlista

Hvernig á að brjóta mál niður í verkhluta eða fasa, setja upp ábyrgð á einstökum verkhlutum og setja inn gátlista og aðgerðir sem tengjast þeim. Hvernig tengja á tilbúin bréf, tölvupósta eða aðrar aðgerðir við fasa undir máli.

Fyrir almenna notendur

1–2 tímar

GoPro Grunnnámskeið

Farið yfir allar helstu aðgerðir. Meðal annars skráning fyrirtækja, tengiliða, einstaklinga, mála, skjala og samskipta. Vinna í Add-in fyrir Outlook, draga og sleppa skjölum og póstum.

30 mínútur

Samþætting við Teams

Farið yfir helstu virkni Teams-samþættingar. Meðal annars hvernig sækja á GoPro Importer, tengja Teams-rás við mál og skjölun Teams-gagna.

30 mínútur

Vöktun og skráning samninga

Uppsetning á samningasniðmátum og stillingar á þeim. Uppsetning staðlaðra samninga og samningsskjala, skráning samninga og vöktunaratriða. Sýn á lokafresti, skráningar í dagatal og tilkynningar.

30 mínútur

Leit, síun á gögnum og skýrslugerð

Almennt um leitarmöguleika í GoPro Foris, meðal annars almenna leit og ítarleit. Hvernig leitarskilyrði eru sett inn og hvernig valin gögn eru flutt í Excel til skýrslugerðar.

30 mínútur

Unnið í GoPro Foris í Outlook

Farið yfir helstu virkni í GoPro Add-In fyrir Outlook. Meðal annars leiðir til að draga og sleppa skjölum og póstum í GoPro Foris, yfirsýn á skjalaða pósta og stofnun mála og viðskiptavina í Add-In.

60 mínútur

Rafræn skil og málavinnsla

Hverju skjalastjórar hjá opinberum stofnunum þurfa að huga að við rafræn skil og gerð vörsluútgáfu til Þjóðskjalasafns Íslands. Meðal annars málalyklar og útgáfustýring á þeim, upphaf og lok mála og tímafrestir.

Skráning

Sendu okkur fyrirspurn

Segðu okkur hvaða námskeið þú vilt og hvernig það hentar best. Við höfum samband og finnum tíma með þér.

1 Veldu námskeið og fyrirkomulag

2 Sendu fyrirspurnina

3 Við staðfestum tíma og sendum þér boð

Frekar tölvupóst?

Sendu okkur línu á ten.orpogobfsctd-1e7c66@dieksman með nafni, vinnustað og námskeiðum.

Námskeið*
Fyrirkomulag