Ráðgjöf og þjónusta
Við fylgjum þér
alla leið
Frá greiningu og innleiðingu til þjálfunar og daglegs stuðnings. Reynt teymi sérfræðinga fylgir þér í hverju skrefi.
Ráðgjöf
Betri ferlar.
Meiri sjálfvirkni
Ráðgjafar Hugvits veita aðstoð, þjálfun og leiðsögn í uppsetningu og notkun GoPro. Aðkoma þeirra að greiningu verkferla getur stóraukið sjálfvirkni í daglegu starfi.
Hugvit notar Prince2 við verkefnastjórnun og innleiðingu og Agile við hugbúnaðarþróun. Verkefnastjórar Hugvits hafa stýrt innleiðingu GoPro bæði hérlendis og erlendis.
Greining verkferla
Við greinum hvernig mál og skjöl fara um stofnunina og finnum hvar stöðluð vinnubrögð og sjálfvirkni skila mestu.
Innleiðing og verkefnastjórnun
Faglærðir verkefnastjórar leiða innleiðinguna eftir Prince2, frá áætlun til gangsetningar.
Ráðgjöf um skjalavistun
Leiðsögn um skjalavistun og skil til opinberra skjalasafna.
Sérlausnir
Hönnun og þróun sérlausna í GoPro þegar staðlaða lausnin dugar ekki ein og sér.
Hvernig við vinnum
Frá fyrstu greiningu
til daglegs reksturs
01
Greining
Við kynnumst starfseminni, verkferlum og þörfum notenda.
02
Innleiðing
Uppsetning, aðlögun og gagnaflutningur undir verkefnastjórn.
03
Þjálfun
Námskeið fyrir notendur og umsjónarfólk, hjá okkur eða hjá ykkur.
04
Rekstur og stuðningur
Þjónustuborð, uppfærslur og kerfisleiga þegar kerfið er komið í notkun.
Þjónusta
Stuðningur þegar
á þarf að halda
Þjónustudeild Hugvits er skipuð sérfræðingum með margra ára reynslu af GoPro. Hún annast almenna þjónustu, kennslu, uppfærslur og innleiðingu.
Ábendingar móta GoPro
Notendur geta sent ábendingar um hugmyndir að umbótum. Svona fer ábending frá notanda inn í hugbúnaðinn.
1. Ábending skráð
Notandi skráir ábendingu og hún berst þróunardeild Hugvits.
2. Samþykktarferli
Ábendingin er metin og, ef hún er samþykkt, forgangsraðað eftir mikilvægi og kostnaði.
3. Í næstu útgáfu
Þegar ábendingin hefur verið leyst fylgir breytingin næstu reglulegu útgáfu GoPro.