Metnaður, framsækni
og traustur rekstur

Hugvit þróar mála- og skjalakerfið GoPro Foris.

Hugvit hefur náð frábærum árangri í hugbúnaðarþróun með GoPro lausnirnar. Við höfum unnið með hundruðum viðskiptavina um allan heim og búum yfir 30 ára reynslu. GoPro lausnirnar eru í stöðugri þróun og eru notaðar hjá fyrirtækjum og stofnunum eins og World Bank í Washington, Oxford-háskóla í Bretlandi, Reykjavíkurborg, Landsrétti, TM, Landsbankanum og Atlanta.

GoPro lausnirnar hafa hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar í gegnum árin, meðal annars Nýsköpunarverðlaun Rannsóknar- og útflutningsráðs, Útflutningsverðlaun forseta Íslands og IBM Lotusphere Best in Show verðlaunin ásamt Beacon-verðlaunum fyrir framsæknustu hugbúnaðarlausnina. Hugvit hf. hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki á hverju ári frá árinu 2010.

Hjá Hugviti starfa yfir 60 starfsmenn á sviði sölu, ráðgjafar, kennslu, þjónustu og þróunar á GoPro fyrir hin ýmsu tækniumhverfi. Um 95% starfsmanna eru háskólamenntaðir, og ráðgjafar okkar og verkefnastjórar hafa margvíslegar vottanir á sviði upplýsingatækni og verkefnastjórnunar. Hugvit notar Prince2 við verkefnastjórnun og innleiðingu, samþætt við Agile-aðferðafræðina sem Hugvit notar við þróun lausna.

Framúrskarandi fyrirtæki 2025, viðurkenning Creditinfo

Stjórn Hugvits

Eggert Claessen

Eggert Claessen

Stjórnarformaður

Eggert er framkvæmdastjóri íslenska nýsköpunarsjóðsins Frumtaks. Hann hefur doktorsgráðu í viðskiptafræði og víðtæka reynslu af frumkvöðlastarfsemi, bæði sem fjárfestir og leiðbeinandi fyrir sprotafyrirtæki.

Helga Ingjaldsdóttir

Helga Ingjaldsdóttir

Meðstjórnandi

Helga er einn upphaflegra stofnenda Hugvits og hefur yfir 20 ára reynslu í íslenska hugbúnaðargeiranum. Hún stýrir fjármálum fyrirtækisins og er Cand.oecon í viðskiptafræði og fyrirtækjastjórnun.

Hermann Már Þórisson

Hermann Már Þórisson

Meðstjórnandi

Hermann er forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Landsbréfum og annar af framkvæmdastjórum Horns framtakssjóðanna. Hann er viðskiptafræðingur og hefur viðamikla reynslu af eftirfylgni fjárfestinga og stjórnarstörfum.

Styrkir og samfélagsmál

Hugvit hefur það að stefnu sinni að styrkja eitt málefni á ári og er það valið fyrir jólin. Góðgerðarfélög eru vinsamlegast beðin um að senda tölvupóst á si.tivguhobfsctd-32bc0f@rukryts til að óska eftir styrkjum.

Mannauður Hugvits er okkar dýrmætasta auðlind og við leggjum ríka áherslu á heilbrigt líferni og jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs. Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinna koma til móts við þarfir fjölskyldufólks. Aðgengi er jafnt fyrir alla í starfsemi fyrirtækisins, jafnt starfsfólk sem viðskiptavini.

Stefnur og staðlar

Hugvit hefur sett sér eftirfarandi stefnur: