Persónuverndarstefna
Um stefnuna
Í rekstri Hugvits er óhjákvæmilegt að afla ýmiss konar upplýsinga. Sumar þeirra varða einstaklinga og geta verið persónugreinanlegar. Hugvit leggur áherslu á að safna einungis þeim upplýsingum sem þörf er á í rekstrinum og samkvæmt lagaheimildum.
Upplýsinga er aflað á gagnsæjan hátt og með virðingu fyrir réttindum þeirra sem þær varða. Þar sem það á við er leitað samþykkis þeirra, samkvæmt lagaheimildum. Tilgangur stefnunnar er að stuðla að því að farið sé með persónuupplýsingar starfsfólks, viðskiptavina og annarra hagsmunaaðila af virðingu og að eftir föngum sé gætt trúnaðar við meðferð þeirra.
Stefnan skýrir:
- hvaða persónuupplýsingum Hugvit safnar
- í hvaða tilgangi þeim er safnað
- hvernig þær eru notaðar
- til hvaða ráðstafana Hugvit grípur til að stuðla að öryggi þeirra og vernd
- hvaða réttinda skráðir einstaklingar kunna að njóta
Núverandi persónuverndarstefna var samþykkt af stjórn Hugvits hf. 27. mars 2018. Í stjórn sitja Dr. Eggert Claessen (formaður), Helga Ingjaldsdóttir og Hálfdán Karlsson.