Góð yfirsýn og vöktun samninga er lykilatriði
Í rekstri fyrirtækja og stofnanna er mikilvægt að hafa góða yfirsýn og stjórn á samningum.
Samningar eru mikilvægur þáttur í rekstri allra fyrirtækja. Gerð og undirritun samnings er aðeins upphafið, því samninga þarf að vakta út líftíma þeirra. Eftir því sem fleiri samningar koma við sögu, því erfiðara verður að halda yfirsýn yfir allar þær dagsetningar, aðgerðir og ákvarðanir sem þeim tengjast. GoPro Samningakerfið er hannað til að létta á þessari byrði, skerpa yfirsýn og efla vöktun.
GoPro Foris Samningakerfið heldur utan um samninga, flokkun þeirra og vistun í miðlægu kerfi með ítarlegum aðgangsstýringum. Samningakerfið getur haldið utan um fjárhagslegar skuldbindingar í formi samninga, hvort sem það er vegna þjónustukaupa eða vörukaupa frá birgjum.
Samningakerfið veitir ítarlega yfirsýn og tryggir:
- Samræmt utanumhald og gerð samninga, vistun og eftirfylgni
- Skráningu ábyrgðaraðila, birgja og undirritunaraðila samninga
- Skráningu staðlaðar samninga byggt á MS Office stílsniðum
- Aðgangsstýringar sem styðja við mismunandi aðgangsheimildir notenda
Jafnframt hafa aðilar nýtt sé möguleika á skráningu samningsupphæða, hagsmunaðila og uppsagnarákvæða svo hægt sé að fá góða yfirsýn yfir þessa lykilþætti. Samningakerfið veitir skilvirkt utanumhald um samskipti við samningsgerð og á samningstímanum. Nú er einnig möguleiki að samþætta samningakerfið við rafrænar undirritannir sem koma sér vel í rekstri á tímum COVID.
Góð stjórn samninga stuðlar að betri vinnubrögðum og greiðari samskiptum, sem skilar sér í bættum rekstri og jákvæðari tengslum við viðskiptavini og samstarfsaðila.
Samningakerfinu er hægt að stilla upp í GoPro Foris á einfaldan hátt. Hafðu samband og fáðu kynningu á GoPro Foris Samningakerfinu.