Tenging við pósthólf Ísland.is

Með auknum tengimöguleikum í GoPro Foris er nú bæði hægt að senda og móttaka gögn beint frá Ísland.is.

Birting gagna í Pósthólfi Ísland.is

Þessi lausn gerir notendum kleift að deila skjölum beint úr GoPro Foris í pósthólf á Ísland.is. Gögnin eru birt með sannarlegum hætti hjá móttakanda, sem auðkennir sig og getur þá nálgast þessi gögn í sínu pósthólfi hjá Ísland.is. Þetta er ígildi þess að senda ábyrgðarbréf til einstaklings eða lögaðila.

Móttaka gagna frá Ísland.is í GoPro Foris

Hægt er að móttaka gögn frá Ísland.is í GoPro Foris. Þegar gögnin berast í GoPro stofnast sjálfkrafa mál og málsaðili og innsend gögn vistast sem hluti af málinu. Þessi lausn skapar gríðarlegt hagræði og eykur öryggi í móttöku gagna frá ytri aðilum.

Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar