Rafrænar undirskriftir

Auðveldaðu umsýslu og undirritun með samþættingu við rafrænar undirskriftir skjala.

Þú getur undirritað skjöl beint í kerfinu eða sent gögn í undirritun til ytri aðila. Kerfið heldur utan um allan ferilinn og vaktar undirritun, ásamt sjálfvirki vistun og skráningu á breytingum í sögu skjals.

Notandi sér í viðmóti GoPro Foris hver staða undirritunar er og getur fylgt eftir með tilkynningum til undirritunaraðila ef þörf er á.

Undirritun beint úr skjala, samninga og fundarkerfi

Lausnin er bæði fyrir undirritun innri og ytri aðila og hægt er að senda öll skjöl, samninga og fundgerðir til undirritunar á mjög skilvirkan hátt.

Undirritunarlausnin býður upp á samþættingu við undirritunarþjónustur frá nokkrum þjónustuaðilum.

  • Stuðningur við fullgilda rafræna undirritun
  • Heildarferli fyrir undirritun innir og ytri aðila
  • Yfirsýn og tilkynningar tengdar stöðu á undirritun
  • Vistun undirritaðs skjals í skjalakerfi sendanda
  • Þægileg umsjón með skjölum sem þurfa rafræna undirskrift

Undirritun ytri aðila

Einfalt er að senda gögn til undirritunar til viðskiptavina, íbúa og annarra ytri aðila. Ytri aðilar geta auðkennt sig á einfaldan hátt með rafrænum auðkennum til að undirrita gögn í vefgátt.

Með rafrænum undirritun er ekki lengur þörf á að senda gögn til undirritunar eða skanna skjöl og bíða eftir að fá þau úr undirritun. Mikil vinnusparnaður og aukið öryggi fæst með samþættri undirritun í GoPro Foris.

© Copyright - Hugvit