Öryggi sem við mælum með í GoPro

Ímyndum okkur starfsmann sem fær tölvupóst sem lítur út eins og venjuleg innskráningarbeiðni frá Microsoft. Hann smellir, slær inn lykilorðið og heldur áfram með daginn. Nokkrum mínútum síðar er einhver annar kominn með lykilorðið hans.

Hvað gerist næst ræðst að miklu leyti af því hvernig kerfin eru stillt. Öryggi í GoPro byggir bæði á öruggu hýsingarumhverfi og réttum stillingum hjá hverri stofnun.

Það sem við sjáum um

Ef GoPro er í kerfisleigu hjá okkur er kerfið hýst á Íslandi, í Reykjavík, í ISO 27001 vottuðu umhverfi. Hver viðskiptavinur er með sitt eigið kerfi og sinn eigin gagnagrunn. Afrit eru tekin daglega og geymd á Akureyri, og við prófum þau reglulega ásamt því að keyra öryggisskannanir og prófanir á umhverfinu.

Öll samskipti við GoPro eru dulkóðuð, með stuðningi við post-quantum dulkóðun. Umferð inn í kerfisleiguna fer í gegnum innbrotsgreiningarkerfi (IDS), og miðlarar og tölvur starfsfólks eru vaktaðar allan sólarhringinn. Ef eitthvað grunsamlegt sést fá sérfræðingar okkar viðvörun og bregðast við. Aðgangur okkar sjálfra að kerfum viðskiptavina er líka stýrður og skráður.

Innan GoPro sér hver notandi aðeins það sem hann hefur aðgang að. En sama hversu vel hýsingin er varin dugar það skammt ef einhver skráir sig inn með stolnu lykilorði. Þar koma stillingarnar þrjár inn.

Innskráning með Entra ID

Við mælum með því að stofnanir láti starfsfólk skrá sig inn í GoPro með Microsoft Entra ID. Þá nota starfsmenn sama aðgang og í Microsoft 365, með tveggja þátta auðkenningu. Stolið lykilorð dugar ekki eitt og sér, og enginn þarf að muna enn eitt lykilorðið.

Í dag eru þrjár leiðir til að skrá sig inn í GoPro:

InnskráningarleiðHvernig hún virkarAthugið
Notandanafn og lykilorðSér aðgangur í GoProÞarf að viðhalda sérstaklega
Windows-innskráningSami aðgangur og í tölvunaAðeins innan nets stofnunar, ekki í boði í kerfisleigu
Microsoft Entra IDSami aðgangur og í Microsoft 365Tveggja þátta auðkenning

Fyrir viðskiptavini okkar er ferlið einfalt. Þið hafið samband, við vinnum með tölvudeildinni ykkar eða þjónustuaðila Microsoft 365 að uppsetningunni og virkjum svo Entra ID í GoPro. Nánar er fjallað um Entra ID í fyrra blogginu okkar.

IP-takmörkun

Förum aftur í svikapóstinn. Án IP-takmörkunar (e. ip-restrictions) getur sá sem stal lykilorðinu skráð sig inn í GoPro hvaðan sem er í heiminum. Með IP-takmörkun er staðan önnur. Ef tengingin kemur ekki frá samþykktu neti stofnunarinnar eða í gegnum VPN hennar opnast GoPro-vefsvæðið einfaldlega ekki og aðgangi er lokað áður en til innskráningar kemur.

Skýringarmynd: tengingar frá neti stofnunar og VPN komast til GoPro, tenging frá óþekktu neti er stöðvuð.

Atvikaskráning

Atvikaskráning (e. audit log) er viðbót við GoPro sem skráir allar færslur í kerfinu, svo hægt sé að rekja hvenær og hvað hver notandi hefur gert. Hún skráir meðal annars innskráningartilraunir, aðgerðir á gögnum og möppum (að búa til, uppfæra, afrita og eyða), aðgerðir í kerfisstjórnborði og aðgerðir í ruslinu. Fyrir hverja aðgerð sést tegund hennar, hver framkvæmdi hana, hlutverk og fyrirtæki notandans og ítarupplýsingar um gögnin.

Þrjú skref til að auka öryggi í GoPro

  • Tengið innskráningu við Entra ID. Við mælum með því og aðstoðum ykkur við uppsetninguna.
  • Setjið upp IP-takmörkun. Við setjum hana upp með ykkur.
  • Nýtið atvikaskráningu. Þá sjáið þið hver gerði hvað þegar á reynir.

Hafið samband við okkur og við förum yfir næstu skref með ykkur.