Vinnupakki

Betri málaskrá
Meira út úr GoPro Foris

Við hjálpum þér að nýta mála- og skjalakerfið betur

1–2 vikur

frá vinnustofu til úrbótalista

Kerfið fullnýtt

láttu GoPro Foris létta þér vinnuna

Fast verð

engin opin tímavinna

Ávinningurinn

Minni handavinna
Betri yfirsýn

GoPro Foris getur gert meira en þig grunar. Við hjálpum þér að virkja það sem skiptir mestu fyrir ykkar vinnulag

Skráning sem hægt er að treysta

Réttar upplýsingar á réttum stað, tilbúnar þegar á þarf að halda.

Kerfið vinnur verkin

Endurtekin skref eru sjálfvirknivædd svo starfsfólk geti sinnt því sem skiptir máli.

Hvert mál á sína ábyrgð

Skýrt er hver ber ábyrgð og ekkert mál gleymist í biðröðinni.

Yfirsýn í rauntíma

Stjórnendur sjá stöðu mála strax og taka ákvarðanir á traustum grunni.

Vinnupakkar

Þrír pakkar
Fast verð á öllum

Byrjaðu á stuttri greiningu og taktu næsta skref þegar það hentar, eða segðu okkur hvað þú vilt gera og við verðleggjum það. Umfang er staðfest áður en vinna hefst.

Pakki 1

Greining

Fljótleg leið til að sjá hvar mest þörf er fyrir úrbætur, fyrir eina deild eða einn feril.

  • 1 lykilferill
  • 1 vinnustofa
  • um 2 vikur frá pöntun

390.000 kr.

Fast verð án vsk.

  • Ein vinnustofa (2–3 klst.) með lykilnotendum
  • Einn lykilferill rýndur eins og hann er unninn í GoPro Foris
  • Tillögur að úrbótum
  • Yfirferðarfundur þar sem listinn er afhentur og ræddur

Næsta skref

Pakki 2

Greining og vegvísir

Fyrir þá sem vilja heildarmynd af lykilferlum og áætlun til næstu sex mánaða.

  • 2–3 lykilferlar
  • 2 vinnustofur
  • 3–4 vikur frá pöntun

1.190.000 kr.

Fast verð án vsk. · 800.000 kr. ef Pakki 1 er að baki

Allt í Pakka 1, auk þess:

  • Núverandi og æskilegt vinnulag fyrir 2–3 lykilferla
  • Yfirferð á stillingum og nýtingu GoPro Foris
  • Einfalt ávinningsmat
  • Vegvísir með forgangsröðun
  • Kynning fyrir stjórnendum

Pakki 3

Sérsniðið verkefni

Fyrir þá sem vita hvað þeir vilja. Þú segir okkur markmiðið, við afmörkum verkið með þér og gefum fast verð.

  • Umfang eftir þörfum
  • Tímalína í tilboði

Fast verð eftir afmörkun

Skriflegt tilboð innan 2–3 daga

  • Stuttur afmörkunarfundur um markmið og þarfir
  • Tilboð með umfangi, skilum og tímalínu
  • Getur náð til innleiðingar, stillinga, sjálfvirkni eða þjálfunar í GoPro Foris
  • Verðið breytist ekki nema umfangið breytist
Byrjaðu á Pakka 1 og þú tapar engu

Ef þú pantar Pakka 2 innan þriggja mánaða dregst verð Pakka 1 frá, og vinnan sem búin er nýtist beint áfram.

Hvernig þetta gengur fyrir sig

Þrjú skref
Skýr skil

01

Ræsing

Umfang afmarkað, tengiliðir staðfestir og gátlisti sendur.

02

Greining

Við förum yfir uppsetninguna í GoPro Foris og vinnum með lykilnotendum á vinnustofu.

03

Skil

Úrbætur kynntar í forgangsröð og næstu skref ákveðin með þér.

Pakki 1: um 2 vikur frá pöntun · Pakki 2: 3–4 vikur · Pakki 3: samkvæmt tilboði

Tímarnir miðast við að gátlistanum sé skilað og vinnustofa haldin innan viku frá pöntun. Því hraðar sem við fáum svörin, því fyrr færðu niðurstöðurnar.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Þurfum við að kaupa eitthvað nýtt?

Nei. Verkefnið snýst um að nýta betur það sem þú ert þegar með í GoPro Foris.

Hversu mikinn tíma þarf starfsfólkið að leggja til?

Í Pakka 1 um 3–4 klukkustundir samtals hjá lykilnotendum, í Pakka 2 um 6–8 klukkustundir. Við sjáum um undirbúning og úrvinnslu.

Getum við byrjað á Pakka 1 og bætt við seinna?

Já. Ef þú pantar Pakka 2 innan þriggja mánaða dregst verð Pakka 1 frá og niðurstöðurnar nýtast beint.

Hvað gerist eftir skil?

Þú getur framkvæmt úrbæturnar sjálf eða fengið Hugvit til að innleiða þær með þér.