Lausnir GoPro
Fundakerfi
Fundakerfið heldur utan um undirbúning, dagskrá, skjöl og niðurstöður funda á öruggan og einfaldan hátt. Hvort sem um er að ræða stjórnarfundi, nefndarfundi eða verkfundi, þá tryggir lausnin að ekkert gleymist og allir hafi aðgang að réttu upplýsingunum á réttum tíma.

Kostir fundakerfisins
Ekkert gleymist.
Allir með réttu upplýsingarnar
Skipulag og yfirsýn
Allt frá boðun fundar til staðfestingar fundargerðar. Fundakerfið heldur utan um dagskrárliði, skjöl og verkefni, með skýrum yfirlitum og rauntímastöðu.
Aðgangur fyrir alla aðila
Fundargestir fá persónulegan aðgang með rafrænum auðkenningum. Þeir sjá sín mál, sín skjöl og geta komið sínum athugasemdum á framfæri.
Auðveldari fundarstjórn
Ritari, fundarstjóri og formenn vinna í sameiginlegu ferli þar sem boðun, dagskrá og fundargerðir fylgja einföldu og skjalfestu flæði. Allt ferlið er aðgengilegt og rekjanlegt frá undirbúningi til útgáfu.
Skjöl og verklag haldast saman
Allir fundir eru tengdir við GoPro Foris málakerfið. Skjöl og ákvarðanir vistast með viðeigandi málum og verkefnum svo ekkert týnist og allt er rekjanlegt.
Traust og öryggi
Byggt fyrir kröfur um rekjanleika og persónuvernd
Öryggi er ekki viðbót heldur forsenda. GoPro er hannað fyrir umhverfi þar sem hvert skref þarf að vera rekjanlegt.
ISO/IEC 27001
Vottað stjórnkerfi upplýsingaöryggis.
Persónuvernd
Vinnsla í samræmi við GDPR og íslensk lög.
Rekjanleiki
Hver aðgerð er skráð og rekjanleg.
Aðgangsstýring
Réttindi eftir hlutverki, deild og máli.
Tengilausnir
Verkfærin þín.
Enn betri saman
Tengdu GoPro við vinnuumhverfið sem þú þekkir. Færðu gögn milli kerfa og haltu upplýsingunum í samhengi.
Ísland.is
Sending og móttaka gagna.
Microsoft 365
Tölvupóstur, dagatal og skjöl tengd beint við málin.
Microsoft Teams
Skjöl og spjall tengd við málin.
Microsoft OneDrive
Samtímavinnsla og samstillt skjöl.
Outlook hliðarstika
Skjölun beint úr pósthólfinu.
Rafrænar undirskriftir
Undirritun og vistun í einu ferli.
Örugg gagnadeiling
Þjónustugátt og Signet Transfer.
Skjalasöfn
Afhending til varðveislu samkvæmt kröfum um skil.



