GoPro yfirlit

Sameinaðu málin.
Tengdu fólkið.
Sjáðu heildina

GoPro sameinar mál, skjöl og samskipti í einu sveigjanlegu kerfi. Fyrir teymi sem vilja vinna betur saman og hafa yfirsýn á hverju skrefi.

GoPro-merkið í miðjunni, tengt einingum og samþættingum eins og Ísland.is, Microsoft 365, Teams, OneDrive, málakerfi og fundakerfi.

200+

Fyrirtæki og stofnanir

30+

Ára reynsla

95%

Viðskiptavinir endurnýja

99,9%

Uppitími þjónustu

Hugsað sem ein heild

Minni flækja í kerfunum.
Meira svigrúm fyrir fólkið

Upplýsingar í samhengi

Finndu skjölin, samskiptin og sögu málsins á einum stað. Minni leit, betri yfirsýn.

Samstarf sem gengur upp

Skýr ábyrgð og samræmdir verkferlar hjálpa teyminu að halda verkefnum á réttri leið.

Stjórn á gögnunum

Aðgangsstýring, útgáfustýring og rekjanleiki styðja við örugga meðferð upplýsinga.

Lausnir GoPro

Réttu verkfærin.
Í sama vinnuumhverfi

Tveir starfsmenn fara yfir mál saman á tölvuskjá

Málakerfi

Frá fyrsta erindi
til afgreidds máls

Haltu utan um mál, skjöl og samskipti í einu samhengi. Skýr ábyrgð og samræmt verklag hjálpa teyminu að fylgja málum eftir.

Yfirsýn yfir stöðu og ábyrgð

Skjöl og samskipti tengd réttu máli

Verkferlar sem styðja við þitt verklag

Fundakerfi

Góður fundur byrjar
á góðu skipulagi

Undirbúðu fundi, deildu gögnum og haltu utan um niðurstöður. Frá fyrstu dagskrá til lokaskjölunar eru upplýsingarnar á sínum stað.

Dagskrá, fundargögn og fundargerðir

Aðgangur fundargesta í gegnum fundagátt

Tilkynningar og skýr eftirfylgni

Þrír starfsmenn á fundi við fartölvu
Starfsmaður skráir athugun á spjaldtölvu

Gæðakerfi

Gerðu gott verklag
að daglegri venju

Haltu gæðaskjölum til haga og auðveldaðu uppfærslur. Verkferlar, skjöl og eftirfylgni sem styðja við gæðastjórnun.

Verklagsreglur með útgáfustýringu

Úttektir, frávik og umbætur

Áminningar um endurskoðun

Samningakerfi

Náðu utan um
allan samninginn

Fylgdu samningum frá drögum og samþykktum til undirritunar. Hafðu yfirsýn yfir gildistíma, breytingar og verkefnin sem fylgja.

Staða og gildistími samninga

Útgáfustýring og samþykktir

Tenging við rafrænar undirskriftir

Samningur yfirfarinn og undirritaður
Þjónustuþegi sendir inn erindi í gegnum gáttina

Þjónustugátt

Erindin berast
beint í rétt mál

Móttaka erinda og samskipti við þjónustuþega í öruggri gátt. Hvert erindi verður að máli um leið og það berst.

Rafræn eyðublöð og innsending

Umsækjandi sér stöðu erindis

Örugg samskipti á einum stað

Traust og öryggi

Byggt fyrir kröfur um rekjanleika og persónuvernd

Öryggi er ekki viðbót heldur forsenda. GoPro er hannað fyrir umhverfi þar sem hvert skref þarf að vera rekjanlegt.

ISO/IEC 27001

Vottað stjórnkerfi upplýsingaöryggis.

Persónuvernd

Vinnsla í samræmi við GDPR og íslensk lög.

Rekjanleiki

Hver aðgerð er skráð og rekjanleg.

Aðgangsstýring

Réttindi eftir hlutverki, deild og máli.

Tengilausnir

Verkfærin þín.
Enn betri saman

Tengdu GoPro við vinnuumhverfið sem þú þekkir. Færðu gögn milli kerfa og haltu upplýsingunum í samhengi.

Ísland.is

Sending og móttaka gagna.

Microsoft 365

Tölvupóstur, dagatal og skjöl tengd beint við málin.

Microsoft Teams

Skjöl og spjall tengd við málin.

Microsoft OneDrive

Samtímavinnsla og samstillt skjöl.

Outlook hliðarstika

Skjölun beint úr pósthólfinu.

Rafrænar undirskriftir

Undirritun og vistun í einu ferli.

Örugg gagnadeiling

Þjónustugátt og Signet Transfer.

Skjalasöfn

Afhending til varðveislu samkvæmt kröfum um skil.