Vinnupakki · GoPro Foris

Power BI tenging
Málagögnin beint í skýrslurnar

Við tengjum GoPro Foris við Power BI svo þið getið greint málin í tóli sem þið þekkið

Daglega

nýjustu málagögnin í Power BI

Sami aðgangur

og í GoPro Foris

Fast verð

engin opin tímavinna

Ávinningurinn

Engir handvirkir gagnaflutningar
Gögn sem hægt er að treysta

Hver sér sín mál

Sama aðgangsstýring og í GoPro Foris.

Í tóli sem þið þekkið

Greinið stöðu, álag og fresti í Power BI.

Örugg tenging

Dulkóðuð og með innskráningu í hvert sinn.

Kerfið hægist ekki

Skýrslurnar hafa engin áhrif á afköst GoPro Foris.

Vinnupakkar

Þrír pakkar
Fast verð eða tilboð

Hver pakki byggir á þeim á undan. Umfang er staðfest áður en vinna hefst.

Pakki 1

Grunntenging

Stöðluð tenging fyrir kerfisleigu.

290.000 kr.

Fast verð án vsk.

  • Uppsetning tengingar við Power BI
  • Dagleg uppfærsla gagna
  • Staðlaðir málareitir
  • Sama aðgangsstýring og í GoPro
  • Dulkóðuð og örugg tenging
  • Gátlisti fyrir uppsetninguna
  • Leiðbeiningar um tengingu
  • Afhendingarfundur á netinu

Næsta skref

Pakki 2

Tenging með aðlögun

Aðlöguð að ykkar þörfum

890.000 kr.

Fast verð án vsk.

  • Uppsetning tengingar við Power BI
  • Dagleg uppfærsla gagna
  • Staðlaðir málareitir
  • Sama aðgangsstýring og í GoPro
  • Dulkóðuð og örugg tenging
  • Gátlisti fyrir uppsetninguna
  • Leiðbeiningar um tengingu
  • Afhendingarfundur á netinu

Auk þess

  • Greiningarfundur með sérfræðingi
  • Allt að 3 sérreitir úr ykkar GoPro
  • Flókin aðgangsstýring, t.d. milli sviða
  • Sérsniðnar gagnasíur
  • Prófunar- og raunumhverfi
  • Prófun með ykkur í Power BI
  • Aðstoð við viðtökuprófanir
  • Kynning fyrir skýrsluhöfunda

Pakki 3

Sérsniðin tenging

Þið segið okkur markmiðið, við gefum ykkur tilboð

Tilboð

Eftir afmörkun

  • Afmörkunarfundur um markmið
  • Kerfisleiga eða eigin hýsing
  • Samþætting við önnur gögn
  • Skýrslur og mælaborð í Power BI
  • Fast verð sem breytist ekki nema umfangið breytist

Mánaðargjald fyrir rekstur og viðhald bætist við og fer eftir fjölda notenda. Binditími er 12 mánuðir.

Hvernig þetta gengur fyrir sig

Þrjú skref
Skýr skil

01

Greining

Gátlisti og greiningarfundur

02

Uppsetning

Tengingin sett upp og aðgangur prófaður

03

Afhending

Við förum yfir tenginguna með ykkur

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Þurfum við Power BI leyfi?

Já, leyfin eru á ykkar vegum.

Sér hver notandi aðeins sín mál?

Já, aðgangur fylgir réttindum í GoPro Foris.

Hversu ný eru gögnin?

Þau eru uppfærð einu sinni á sólarhring.

Hvað ef við hýsum GoPro Foris sjálf?

Pakkar 1 og 2 eru fyrir þá sem eru í kerfisleigu Hugvits. Ef þið hýsið GoPro Foris og gögnin í eigin umhverfi hentar Pakki 3, og þá afmörkum við verkið með ykkur og gefum ykkur tilboð. Pakki 3 stendur líka kerfisleigu viðskiptavinum til boða þegar þarfirnar fara út fyrir Pakka 2.